Dimma
Dimma var stofnuð árið 1992 í þeim tilgangi að gefa út tónlist og
bókmenntir. Allar götur síðan hefur útgáfan verið uppruna sínum trú og
þrátt fyrir aukin umsvif eru ljóð, vísnatónlist, þjóðlög og jazz það
sem sett er í fyrirrúm, auk barnaefnis. Á 16 árum hefur Dimma gefið út
rúmlega 40 geisladiska með tónlist og yfir þrjátíu hljóðbækur auk allmargra
ljóðabóka, nótnabóka og örfárra annarra bóka. Hér á síðunni eru
upplýsingar um allt það helsta.
Hægt er að panta vörur beint frá útgáfunni með því að senda tölvupóst á dimma@dimma.is
en einnig er tónlist frá Dimmu seld hjá grapewire.net og tonlist.is
Dimma
is an independent label and publisher of music, cd´s and books, mainly
focusing on jazz, folk and roots as well as new children´s music and
poetry.
Skólavörðustíg 27,
101 Reykjavík
s. 562 1921 - 897 5521
kt. 501299-2359
Svavar Knútur hefur gert víðreist það sem af er ári til að fylgja eftir geisladisknum Kvöldvöku og var m.a. á tónleikaferðalagi um Ástralíu frá byrjun janúar og fram á vor. Þá fór hann í stutta tónleikaferð til Parísar, þar sem honum var mjög vel tekið á þrennum tónleikum. Auk þess var hann fyrir skemmstu í Svíþjóð og Bretlandi, en framundan er íslenskt tónlistarsumar þar
sem hann kemur víða við.
Barnabókin Dvergasteinn eftir Aðalstein Ásberg
Sigurðsson kom út á finnsku fyrr í mánuðinum hjá Bokförlaget Idun í þýðingu
Päivi Kumpulainen með nýjum
myndskreytingum eftir finnska teiknarann Timo Koljonen. Dvergasteinn er þriðja
bók Aðalsteins sem kemur út í Finnlandi, en áður hefur forlagið Idun gefið út
bækur hans Brúin yfir Dimmu og Ljósin í Dimmuborg.
Aðalsteinn Ásberg
kom fram á norrænum dögum í bænum Kuopio
í síðustu viku og kynnti þá meðal annars Dvergastein, auk þess að heimsækja
skóla og leikskóla þar sem hann flutti ljóð og söngva, en þar var þýðandinn
Marjakaisa Matthíasson honum til fulltingis, en hún hefur auk Dimmu-bókanna
þýtt bæði ljóð og söngtexta eftir hann.
Á finnsku hefur
Dvergasteinn hlotið aðeins lengra nafn en á íslensku eða Haltia joka kadotti hohtokivensä sem þýðir
Dvergurinn sem glataði gljásteini. Bókaforlagið Idun gefur út þýddar barnabækur
á finnsku og sænsku. Sjá nánar á www.idun.fi
Guðrún
Gunnars og Aðalsteinn Ásberg flytja
úrval
úr verkum söngvaskáldsins vinsæla í tali og tónum
Gunnar
Gunnarsson, píanó - Jón Rafnsson, kontrabassi
Takmarkaður sætafjöldi. Forsala á midi.is Miðvikudag 24. febrúar kl. 21 - föstud. 26. febrúar kl. 21 lau. 27/2 kl. 21 ![]()
fös.12/3 kl. 21
Í
kjölfar afar vel heppnaðrar útgáfu og tónleika um land allt á síðasta ári er nú
efnt til nýstárlegrar tónleikaraðar í Norræna húsinu þar sem fléttað er saman
tónlist og frásögn af lífi þessa einstaka trúbadúrs. Guðrún og Aðalsteinn gera
Vreeswijk verðug skil og eðalfínir textar og lög njóta sín til fulls.
Dagskráin
verður flutt í örfá skipti og sætafjöldi er takmarkaður. Veitingastaðurinn Dill
býður upp á tvíréttaðan matseðil á tilboðsverði sýningardagana. Kvöldskemmtun í
sérflokki fyrir unnendur góðrar tónlistar!
Ragnheiður Gröndal - Sigurður Flosason
- Egill Ólafsson
ásamt Kjartani Valdemarssyni og
Matthíasi Hemstock
á tónleikum sunnudaginn 14. febrúar
kl. 20
Í tilefni af útkomu
geisladisksins Það sem hverfur og
vetrarjazzi í Reykjavík er efnt til tónleika í Þjóðmenningarhúsinu þar sem
flutt verður ný tónlist Sigurðar Flosasonar við eyðibýlaljóð Aðalsteins Ásbergs
Sigurðssonar. Tónlistin kom út á samnefndum geisladiski í nóvember sl og hlaut
mjög góða dóma. Þetta er dramatísk tónlist þar sem jazz, popp,
sígild tónlist og þjóðleg stef renna saman og skapa bræðing sem hæfir efninu
vel. Flytjendur eru söngvararnir Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson,
Sigurður Flosason á ýmis blásturshljóðfæri, Kjartan Valdemarsson á píanó og hljómborð
og Matthías Hemstock á trommur, trommuheila og náttúruhljóð.
Aðeins
þetta eina sinn. Takmarkaður sætafjöldi!
Miðaverð: 2.500,- Miðasala á midi.is
Segðu mér og segðu ... er prýdd veglegum litmyndum eftir Lindu Ólafsdóttur, sem nýlega
lauk mastersnámi myndskreytingum frá Academy of Art university í San Francisco
og útskrifaðist með hæstu einkunn. Áður hafði hún lokið námi úr grafíkdield
Listaháskóla Íslands. Bókin er frumraun Lindu á sviði bókaskreytinga, en hún
hefur tekið þátt í samsýningum listamanna í San Francisco og hlotið verðlaun
fyrir verk sín.
Tónskáldið og
saxófónleikarinn Sigurður Flosason hefur sent frá sér nýjan disk með
sönglagasyrpu við ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar.
Sigurði til fulltingis á
nýja diskinum eru söngvararnir Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson, ásamt
Kjartani Valde
marssyni, sem leikur á píanó , hljómborð, orgel, harmóníkku og
hljóðgerfla, og Matthíasi Hemstock á trommur, slagverk , trommuheila og
náttúruhljóð.
Dimma hefur gefið út örsagnasafnið Tónlist hamingjunnar eftir Völu Þórsdóttur og er það fyrsta bók höfundarins sem áður hefur getið sér gott orð fyrir leikrit sín bæði hérlendis og erlendis, m.a. einleikinn Háaloft og Eldhús eftir máli, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu. Í Tónlist hamingjunnar sýnir höfundurinn á sér nýja hlið þótt tenglsin við leikverkin séu ef til vill undirliggjandi og sumar sagnanna eigi sér rætur í þáttagerð fyrir sjónvarp.
Örsögurnar er 52 talsins og eiga það sameiginlegt að birta sérkennilega mynd af samtímanum. Persónur og atburðir koma stöðugt á óvart og fáránleikinn er sjaldnast langt undan. Geisladiskur með lestri höfundar fylgir bókinni og svo skemmtilega vill til að verkið kemur samtímis út á Íslandi og í Tyrklandi.
Dimma hefur gefið út á hljóðbók hina fjörugu og ærslafullu sögu Ballið á Bessastöðum eftir Gerði Kristnýju í lestri höfundar.
Sagan er um forseta, þrjá forsetaritara, gröfukarla og hjólabrettastelpu, hundrað ára gamla konu og krakkaskara sem lendir í vandræðum við Tjörnina. Kona úr Mývatnssveit, sem veit heil ósköp um ský, kemur líka við sögu. Hver getur ímyndað sér ball á Bessastöðum með öllum þessum persónum og mörgum fleiri? Saga sem gleður bæði börn og fullorðna.
Framhald sögunnar, Prinsessan á Bessastöðum, en nýkomin út í prentaðri útgáfu, en Ballið á Bessastöðum er fyrsta hljóðbók höfundarins fyrir unga lesendur.
Agnar Már Magnússon píanóleikari sendir nú frá sér nýjan geisladisk um þessar mundir með frumsaminni jazztónlist og nefnist hann Kvika. Diskurinn hefur að geyma upptökur frá tónleikum á jazzhátíð í Reykjavík 2008, þar sem fram komu ásamt Agnari Má þeir Ben Street bassaleikari og Bill Stewart trommuleikari, en báðir eru þeir vel þekktir bandarískir jazztónlistarmenn. Svo skemmtilega vill til að þeir hafa áður hljóðritað efni með Agnari þegar hann tók upp fyrsta disk sinn í New York og gaf út hjá Fresh Talent útgáfunni árið 2001. Á nýja diskinum eru 9 tónsmíðar eftir Agnar.
Áður hefur Dimma gefið út með Agnari Má hinn rómaða disk Láð, sem kom út fyrir tveimur árum, Atlantshaf (Agnar Már, Jóel Pálsson, Gunnlaugur Guðmundsson og Einar Scheving) 2006 og Ég um þig, sem hann gerði í félagi við Kristjönu Stefánsdóttur jazzsöngkonu árið 2005.
Hljóðritun á tónleikunum og eftirvinnslu annaðist Sveinn Kjartansson. Um ljósmyndun og hönnun umslags sá Högni Sigurþórsson.
