Svavar Knútur hljóðritaði nýverið geislaplötu sem kom út á dögunum og nefnist Kvöldvaka. Á plötunni ríkir sannkölluðu kvöldvökustemmning þar sem söngvaskáldið er í aðalhlutverki við eigin undirleik á gítar. Einnig leika á plötunni Ingólfur Magnússon á kontrabassa, Jón Geir Jóhannsson á slagverk og Hallgrímur Jónas Jensson á selló. Kvöldvaka kemur út í 500 tölusettum eintökum fyrir íslenskan markað og verður einungis seld á tónleikum og hjá útgefanda, en hægt er að nálgast plötuna eða stök lög af henni á tónlist.is
Þessa dagana er Svavar Knútur á tónleikaferð í Þýskalandi og Danmörku, þar sem hann kynnir nýju plötuna. Á sumri komanda mun hann halda fleiri tónleika í Þýskalandi í kjölfar velheppnaðra tónleika í febrúar sl. en þá kom hann m.a. fram á hátíðinni Melodica Acoustic Festival í Hamborg fyrir um 1000 áheyrendur og var boðin þátttaka í tónleikaröðini „Songs & whispers" í júlímánuði.
Með hljómsveitinni Hraun hefur Svavar Knútur áður sent frá sér tvær geislaplötur, Silent Treatment (2008) og I can´t believe it´s not happiness (2007).
Kvöldavaka var hljóðrituð í Sundlauginni Stúdíói í byrjun apríl. Umslag hannaði Högni Sigurþórsson, en Prentsmiðja GuðjónÓ sá um prentverk.
