Guðrún Gunnars áamt fríðu
föruneyti á tónleikaferð með ljóð og lög eftir söngvaskáldið góðkunna Cornelis
Vreeswijk
Guðrún
Gunnarsdóttir verður á ferð um landið og heldur tónleika á eftirtöldum stöðum:
Akureyri - Græni hatturinn - þriðjudaginn 21. júlí kl. 21
Vopnafjörður - Félagsheimilið -
miðvikudaginn 22. júlí kl. 21
Húsavík - Hvalasafnið - fimmtudaginn 23. júlí kl. 21
Stykkishólmur - Stykkishólmskirkja - föstudaginn 24. júlí kl. 21
Reykjavík - Norræna
húsið - laugardaginn 25 júlí kl. 16
Suðurland - Gamla Borg í Grímsnesi - sunnudaginn 26. júlí kl. 21
Á tónleikunum
flytur Guðrún ljóð og lög eftir sænska söngvaskáldið Cornelis Vreeswijk í
íslenskum búningi Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar, en geisladiskur með efninu
er nýkominn út.
Ásamt Guðrúnu koma fram á tónleikunum þeirTomas „Limpan" Lindberg, gítar, mandóla, búsúkí,
Magnus „Storis" Holmström, nyckelharpa og kontrabassaharpa, Dan Berglund, kontrabassi,Valgeir
Skagfjörð, píanó, harmónikka, Pétur Grétarsson, slagverk og Aðalsteinn Ásberg, kynningar
og söngur.
Nýr geisladiskur - Guðrún Gunnars syngur ljóð og lög
eftir söngvaskáldið góðkunna Cornelis Vreeswijk
Dimma hefur gefið út
nýjan geisladisk með söngkonunni Guðrúnu Gunnars. Á diskinum eru ljóð og lög
eftir sænska söngvaskáldið Cornelis Vreeswijk í íslenskum búningi Aðalsteins
Ásbergs Sigurðssonar.Það heyrir til
tíðinda að jafn mikilvirkur og virtur höfundur komi nú fyrst út á íslensku en
hugmyndin hefur verið í gerjun um árabil. Ásamt Guðrúnu eru flytjendurnir þeir Tomas
„Limpan" Lindberg, sem leikur á gítar, mandólu og búsúkí, Magnus „Storis"
Holmström, sem leikur á nyckelhörpu og kontrabassahörpu, Dan Berglund, sem
leikur á kontrabassa,Valgeir Skagfjörð, sem leikur á píanó, harmónikku og
fótstigið orgel og Pétur Grétarsson, sem leikur á slagverk. Auk þess syngur Aðalsteinn
Ásberg eitt lag.
Svíarnir þrír sem koma að verkinu eru allir virtir
tónlistarmenn. Tomas Lindberg hefur áður unnið með íslenskum tónlistarmönnum,
þegar hann ásamt þjóðlagatríóinu Draupner hljóðritaði plötuna Sagnadans með
Önnu Pálínu Árnadóttur, Magnus Holmström er margverðlaunaður meistari á
nyckelhörpu og bassaleikarinn Dan Berglund er kunnastur fyrir leik sinn með
djasstríóinu EST (Esbjörn Svensson Trio).
Geisladiskurinn var tekinn upp í Hljóðrita og sá
Guðmundur Kristinn Jónsson um hljóðritun, en Styrmir Hauksson hljómjafnaði.
Ólöf Erla Einarsdóttir hannaði umslag og bækling.
Áður hefur Dimma gefið út tvær sólöplötur Guðrúnar
Gunnarsdóttur; Óð til Ellyjar (2003)
og Eins og vindurinn (2004).
Hópurinn sem stendur að Cornelis Vreeswijk diskinum
mun fylgja honum eftir með tónleikum á nokkrum stöðum dagana 21. - 26. júlí nk.
Cornelis Vreeswijk (1937-1987) var söngvaskáld, ljóðskáld og leikari,
fæddur í IJmuiden í Hollandi, en fluttist 12 ára gamall ásamt foreldrum sínum
til Svíþjóðar. Hann ætlaði sér að verða blaðamaður, en tónlistin varð fljótlega
helsta viðfangsefni hans. Biturt háð og samfélagsádeila í verkum hans aflar
honum sífellt nýrra aðdáenda. Á ferli sínum sendi hann frá sér nokkrar
ljóðabækur og á fimmta tug LP platna í Svíþjóð og Hollandi. Auk þess að vera
vinsæll tónlistarflytjandi lék hann við góðan orðstír í leikhúsum og
kvikmyndum. Cornelis Vreeswijk er jafnan talinn meðal helstu söngvaskálda Svía.