October 2009 Gagnasafn/Archives

Tónlist hamingjunnar eftir Völu Þórsdóttur

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks

Dimma hefur gefið út örsagnasafnið Tónlist hamingjunnar eftir Völu Þórsdóttur og er það fyrsta bók höfundarins sem áður hefur getið sér gott orð fyrir leikrit sín bæði hérlendis og erlendis, m.a. einleikinn Háaloft og Eldhús eftir máli, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu. Í Tónlist hamingjunnar sýnir höfundurinn á sér nýja hlið þótt tenglsin við leikverkin séu ef til vill undirliggjandi og sumar sagnanna eigi sér rætur í þáttagerð fyrir sjónvarp.

Örsögurnar er 52 talsins og eiga það sameiginlegt að birta sérkennilega mynd af samtímanum. Persónur og atburðir koma stöðugt á óvart og fáránleikinn er sjaldnast langt undan. Geisladiskur með lestri höfundar fylgir bókinni og svo skemmtilega vill til að verkið kemur samtímis út á Íslandi og í Tyrklandi.

Geisladiskur með lestri höfundar fylgir bókinni.

tonlist_hamingjunnar_kapa_lowres.jpg

Ballið á Bessastöðum komin á hljóðbók

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks
ballid_bessast_hljodbok_kapa_lowres.jpg

Dimma hefur gefið út á hljóðbók hina fjörugu og ærslafullu sögu Ballið á Bessastöðum eftir Gerði Kristnýju í lestri höfundar. 

Sagan er um forseta, þrjá forsetaritara, gröfukarla og hjólabrettastelpu, hundrað ára gamla konu og krakkaskara sem lendir í vandræðum við Tjörnina. Kona úr Mývatnssveit, sem veit heil ósköp um ský, kemur líka við sögu. Hver getur ímyndað sér ball á Bessastöðum með öllum þessum persónum og mörgum fleiri? Saga sem gleður bæði börn og fullorðna.

Framhald sögunnar, Prinsessan á Bessastöðum, en nýkomin út í prentaðri útgáfu, en Ballið á Bessastöðum er fyrsta hljóðbók höfundarins fyrir unga lesendur.


Tónleikaupptökur Agnars Más komnar út

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks

Agnar Már Magnússon píanóleikari sendir nú frá sér nýjan geisladisk um þessar mundir með frumsaminni jazztónlist og nefnist hann Kvika. Diskurinn hefur að geyma upptökur frá tónleikum á jazzhátíð í Reykjavík 2008, þar sem fram komu ásamt Agnari Má þeir Ben Street bassaleikari og Bill Stewart  trommuleikari, en báðir eru þeir vel þekktir bandarískir jazztónlistarmenn. Svo skemmtilega vill til að þeir hafa áður hljóðritað efni með Agnari þegar hann tók upp fyrsta disk sinn í New York og gaf út hjá Fresh Talent útgáfunni árið 2001.  Á nýja diskinum eru 9 tónsmíðar eftir Agnar.

 

Áður hefur Dimma gefið út með Agnari Má hinn rómaða disk Láð, sem kom út fyrir tveimur árum, Atlantshaf (Agnar Már, Jóel Pálsson, Gunnlaugur Guðmundsson og Einar Scheving) 2006 og Ég um þig, sem hann gerði í félagi við Kristjönu Stefánsdóttur jazzsöngkonu árið 2005.

 KVIKA_COV_X_netuppl.jpg

Hljóðritun á tónleikunum og eftirvinnslu annaðist Sveinn Kjartansson. Um ljósmyndun og hönnun umslags sá Högni Sigurþórsson.                                                                                  

darkthoughts_cover_nettupppl.jpgFyrsta sameiginlega útgáfa Dimmu á Íslandi og Dimmu í Svíþjóð hefur litið dagsins ljós, en það er platan Dark Thoughts með Sigurði Flosasyni og Norrbotten Big Band. Á plötunni er eingöngu efni eftir Sigurð í útsetningum hljómsveitarstjórans Daniels Nolgård. Norrbotten Big Band er ein af þekktari stórsveitum Evrópu og það er því fengur að þessari nýju plötu.
Dimma Sweden er sjálfstætt systurfyrirtæki Dimmu á Íslandi, stofnað fyrir þremur árum. Það hefur tekið að sér dreifingu á völdum titlum, s.s. Sagnadansi og plötu Guðrúnar Gunnars með efni eftir Cornelis Vreeswijk.

Efni