Agnar Már Magnússon píanóleikari sendir nú frá sér nýjan geisladisk um þessar mundir með frumsaminni jazztónlist og nefnist hann Kvika. Diskurinn hefur að geyma upptökur frá tónleikum á jazzhátíð í Reykjavík 2008, þar sem fram komu ásamt Agnari Má þeir Ben Street bassaleikari og Bill Stewart trommuleikari, en báðir eru þeir vel þekktir bandarískir jazztónlistarmenn. Svo skemmtilega vill til að þeir hafa áður hljóðritað efni með Agnari þegar hann tók upp fyrsta disk sinn í New York og gaf út hjá Fresh Talent útgáfunni árið 2001. Á nýja diskinum eru 9 tónsmíðar eftir Agnar.
Áður hefur Dimma gefið út með Agnari Má hinn rómaða disk Láð, sem kom út fyrir tveimur árum, Atlantshaf (Agnar Már, Jóel Pálsson, Gunnlaugur Guðmundsson og Einar Scheving) 2006 og Ég um þig, sem hann gerði í félagi við Kristjönu Stefánsdóttur jazzsöngkonu árið 2005.
Hljóðritun á tónleikunum og eftirvinnslu annaðist Sveinn Kjartansson. Um ljósmyndun og hönnun umslags sá Högni Sigurþórsson.

Setja inn umsögn/Place a Comment