Dimma hefur gefið út örsagnasafnið Tónlist hamingjunnar eftir Völu Þórsdóttur og er það fyrsta bók höfundarins sem áður hefur getið sér gott orð fyrir leikrit sín bæði hérlendis og erlendis, m.a. einleikinn Háaloft og Eldhús eftir máli, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu. Í Tónlist hamingjunnar sýnir höfundurinn á sér nýja hlið þótt tenglsin við leikverkin séu ef til vill undirliggjandi og sumar sagnanna eigi sér rætur í þáttagerð fyrir sjónvarp.
Örsögurnar er 52 talsins og eiga það sameiginlegt að birta sérkennilega mynd af samtímanum. Persónur og atburðir koma stöðugt á óvart og fáránleikinn er sjaldnast langt undan. Geisladiskur með lestri höfundar fylgir bókinni og svo skemmtilega vill til að verkið kemur samtímis út á Íslandi og í Tyrklandi.

Setja inn umsögn/Place a Comment