Segðu mér og segðu ... er prýdd veglegum litmyndum eftir Lindu Ólafsdóttur, sem nýlega
lauk mastersnámi myndskreytingum frá Academy of Art university í San Francisco
og útskrifaðist með hæstu einkunn. Áður hafði hún lokið námi úr grafíkdield
Listaháskóla Íslands. Bókin er frumraun Lindu á sviði bókaskreytinga, en hún
hefur tekið þátt í samsýningum listamanna í San Francisco og hlotið verðlaun
fyrir verk sín.
November 2009 Gagnasafn/Archives
Út er komin ljóðabókin Segðu mér og segðu ... eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Í
bókinni eru yrkisefnin af ýmsum toga og fortíð og nútíð fléttast saman. Þjóðleg
stef, romsur og óhefðbundin kvæði kallast á. Áður hefur Aðalsteinn Ásberg sent
frá sér á annan tug frumsaminna og þýddra ljóðabóka, þar á meðal kveðskap fyrir
börn í Romsubókinni sem kom út fyrir
f
áeinum árum. Ennfremur hefur hann skrifað skáldsögur og smásögur fyrir unga
lesendur, auk þess að semja tónlist og fjölda söngljóða sem notið hafa vinsælda.
Jafnhliða prentaðri
útgáfu kemur Segðu mér og segðu ... út á hljóðbók í lestri höfundar.
Tónskáldið og
saxófónleikarinn Sigurður Flosason hefur sent frá sér nýjan disk með
sönglagasyrpu við ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar.
Sigurði til fulltingis á
nýja diskinum eru söngvararnir Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson, ásamt
Kjartani Valde
marssyni, sem leikur á píanó , hljómborð, orgel, harmóníkku og
hljóðgerfla, og Matthíasi Hemstock á trommur, slagverk , trommuheila og
náttúruhljóð.
Lesa meir/Continue reading Það sem hverfur - Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson syngja nýja tónlist Sigurðar Flosasonar.
