February 2010 Gagnasafn/Archives

Cornelis Vreeswijk í Norræna húsinu

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks

Guðrún Gunnars og Aðalsteinn Ásberg flytja

úrval úr verkum söngvaskáldsins vinsæla í tali og tónum

Gunnar Gunnarsson, píanó - Jón Rafnsson, kontrabassi


Takmarkaður sætafjöldi. Forsala á midi.is Miðvikudag 24. febrúar kl. 21 - föstud.  26. febrúar kl. 21           lau.  27/2 kl. 21  Thumbnail image for kynnmynd_CV_norraenahus.jpg

lau.  6/3 kl. 21
fös.12/3 kl. 21

 

Í kjölfar afar vel heppnaðrar útgáfu og tónleika um land allt á síðasta ári er nú efnt til nýstárlegrar tónleikaraðar í Norræna húsinu þar sem fléttað er saman tónlist og frásögn af lífi þessa einstaka trúbadúrs. Guðrún og Aðalsteinn gera Vreeswijk verðug skil og eðalfínir textar og lög njóta sín til fulls.

Dagskráin verður flutt í örfá skipti og sætafjöldi er takmarkaður. Veitingastaðurinn Dill býður upp á tvíréttaðan matseðil á tilboðsverði sýningardagana.   Kvöldskemmtun í sérflokki fyrir unnendur góðrar tónlistar!


Það sem hverfur í Þjóðmenningarhúsinu

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks

Ragnheiður Gröndal - Sigurður Flosason - Egill Ólafsson

ásamt Kjartani Valdemarssyni og Matthíasi Hemstock

á tónleikum sunnudaginn 14. febrúar kl. 20

 

Í tilefni af útkomu geisladisksins Það sem hverfur og vetrarjazzi í Reykjavík er efnt til tónleika í Þjóðmenningarhúsinu þar sem flutt verður ný tónlist Sigurðar Flosasonar við eyðibýlaljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Tónlistin kom út á samnefndum geisladiski í nóvember sl og hlaut mjög góða dóma. Þetta er dramatísk tónlist  þar sem jazz, popp, sígild tónlist og þjóðleg stef renna saman og skapa bræðing sem hæfir efninu vel. Flytjendur eru söngvararnir Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson, Sigurður Flosason á ýmis blásturshljóðfæri, Kjartan Valdemarsson á píanó og hljómborð og Matthías Hemstock á trommur, trommuheila og náttúruhljóð.
 
 
Aðeins þetta eina sinn. Takmarkaður sætafjöldi!

 Það sem hverfur_flytjendur.jpg

Miðaverð: 2.500,- Miðasala á midi.is

Efni