Barnabókin Dvergasteinn eftir Aðalstein Ásberg
Sigurðsson kom út á finnsku fyrr í mánuðinum hjá Bokförlaget Idun í þýðingu
Päivi Kumpulainen með nýjum
myndskreytingum eftir finnska teiknarann Timo Koljonen. Dvergasteinn er þriðja
bók Aðalsteins sem kemur út í Finnlandi, en áður hefur forlagið Idun gefið út
bækur hans Brúin yfir Dimmu og Ljósin í Dimmuborg.
Aðalsteinn Ásberg
kom fram á norrænum dögum í bænum Kuopio
í síðustu viku og kynnti þá meðal annars Dvergastein, auk þess að heimsækja
skóla og leikskóla þar sem hann flutti ljóð og söngva, en þar var þýðandinn
Marjakaisa Matthíasson honum til fulltingis, en hún hefur auk Dimmu-bókanna
þýtt bæði ljóð og söngtexta eftir hann.
Á finnsku hefur
Dvergasteinn hlotið aðeins lengra nafn en á íslensku eða Haltia joka kadotti hohtokivensä sem þýðir
Dvergurinn sem glataði gljásteini. Bókaforlagið Idun gefur út þýddar barnabækur
á finnsku og sænsku. Sjá nánar á www.idun.fi
