Ömmutónleikar - Svavar Knútur í Þjóðmenningarhúsinu

| Engar vísanir/No TrackBacks
Söngvaskáldið Svavar Knútur hefur sent frá sér geisladiskinn Ömmu sem hljóðritaður var á stofutónleikum í október síðastliðnum. Af því tilefni heldur hann útgáfutónleika í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudaginn 25. nóv. kl. 21.00  Á dagskránni eru ýmis lög sem Svavar Knútur hefur tekið ástfóstri við í gegnum tíðina, en plötuna tileinkar hann ömmum sínum þar sem lögin eru flest komin til ára sinna og hafa verið sungin af eldri kynslóðum. Öll lögin nema eitt eru í útsetningum söngvaskáldsins sem leikur ýmist undir á gítar eða ukulele, en í einu lagi kemur píanóleikarinn Árni Heiðar Karlsson við sögu og í öðru lagi ljá Karítur Íslands raddir sínar til að auka á blæbrigðin. Meðal söngva á diskinum eru Kvöldið er fagurt, Draumalandið, Sofðu unga ástin mín, Næturljóð úr Fjörðum og nýtt lag Svavars við Álfareiðina. 


Ömmutónleikarnir hefjast sem áður sagði kl. 21 og er ókeypis aðgangur fyrir ömmur meðan húsrúm leyfir. Almennt miðaverð er 1.500 krónur.  Forsala á midi.is


Svavar-lopa.jpg

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/162

Efni