Útgáfutónleikar Gunnars Gunnarssonar í Þjóðmenningarhúsinu

| Engar vísanir/No TrackBacks

Hinn landskunni píanóleikari og organisti Gunnar Gunnarsson heldur útgáfutónleika í Þjóðmenningarhúsinu fimmtudaginn 2. desember kl. 21:00 Gunnar hefur sent frá sér fjölda geisladiska sem hlotið hafa einróma lof. Í tilefni af útkomu nýjustu afurðar sinnar, sem nefnist Gnótt, efnir hann til tónleika og leikur ásamt valinkunnum meðspilurum bæði nýtt og eldra efni. Með Gunnari koma fram þeir Tómas R. Einarsson bassaleikari og Ómar Guðjónsson gítarleikari. Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að heyra eðalfínar útsetningar Gunnars á lögum sem hitt hafa margan manninn í hjartastað. Hljóðritanir Gunnars er m.a. að finna á geisladiskunum Skálm, Stef, Des, Húm og Hrím, en nú bætist Gnótt í þann fríða flokk. Forsala aðgöngumiða á midi.is

gunnar_gunnarsson.jpg

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/166

Efni