Nýr geisladiskur með með bestu lögum Bergþóru Árnadóttur er kominn út. Þessi útgáfa hefur að
geyma 22 lög sem gefa góða mynd af Berþóru sem höfundi og flytjanda. Fyrir
þremur árum kom út 5 diska heildaútgáfa með verkum hennar, en sú útgáfa er
uppseld. Meðal vinsælla laga á nýja diskinum má nefna Verkamann, Lífsbókina,
Borgarljós, Móðursorg og Sýnir.
Diskurinn er sá fyrsti
í nýrri útgáfuröð frá Dimmu. Útlitshönnun var í höndum Vilborgar Önnu Björnsdóttur.
