Tónlist Bergþóru í nýjum búningi á minningartónleikum í Salnum

| Engar vísanir/No TrackBacks

Fjórðu minningartónleikarnir um söngvaskáldið Bergþóru Árnadóttur verða haldnir í Salnum í Kópavogi þriðjudginn 15. febrúar kl. 20. Það er Minningarsjóður Bergþóru sem efnir til tónleikanna en þeir eru að vanda haldnir á afmælisdegi hennar.  Bergþóra_brosandi_naermynd.jpg

Að þessu sinni verða mörg af þekktari lögum Bergþóru flutt í fyrsta sinn í kórútsetning-um og koma þrír kórar við sögu, en stjórnandi þeirra er Guðlaugur Viktorsson. Um er ræða hinn landsþekkta Lögreglukór Reykjavíkur, Kór Menntaskólans í Reykjavík og Vox Populi. Einnig kemur söngvarinn Jónas Sigurðsson fram með Lögreglukórnum.  Undirleik annast Gunnar Gunnarsson á píanó, Vilhjálmur Guðjónsson á gítar,  Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Hjörleifur Valsson á fiðlu. Þau Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Bára Grímsdóttir,  Skarphéðinn Hjartarson og Tryggvi M. Baldvinsson hafa útsett söng-lög Bergþóru fyrir karlakór og blandaða kóra.  Kynnir á tónleikunum verður Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson. Þess er að vænta að tónleikarnir verði einkar veglegir og því ætti enginn aðdáandi söngvaskáldsins góða að láta þá framhjá sér fara.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/169

Efni