Anna Pálína - BEZT komin út

| Engar vísanir/No TrackBacks
Út er kominn geisladiskurinn Anna Pálína - BEZT í nýrri hljóðritaröð útgáfunnar Dimmu. Um er að ræða 21 lag með hinni vinsælu og dáðu vísnasöngkonu Önnu Pálínu Árnadóttur, en sum af lögunum hafa lengi verið ófáanleg svo sem Haustvísa, Lífinu ég þakka og Maístjarnan.

Anna Pálína Árnadóttir (1963-2004) haslaði sér snemma völl á sviði tónlistar og var um árabil ein dáðasta og vinsælasta vísnasöngkona á Íslandi. Lengst af starfaði hún með eiginmanni sínum, skáldinu og tónlistarmanninum Aðalsteini Ásberg Sigurðssyni, og hljóðritaði alls 8 geisladiska með framsækinni vísnatónlist, sálmum í nýstárlegum búningi, barnatónlist sem naut mikilla vinsælda, djasstónlist af gamla skólanum og íslenskum þjóðlögum.    

Thumbnail image for DIM 50 AP_Bezt.jpg
Í lok apríl verður frumsýnd í Iðnó leikgerð af Ótuktinni, bók Önnu Pálínu, þar sem hún greinir frá vangaveltum sínum, innstu hugsunum og tilfinningum á meðan hún er að ganga í gegnum þær hremmingar sem fylgja því að lifa með krabbamein.
Forsala á
midi.is

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/171

Efni