Milli trjánna eftir Gyrði Elíasson komin út á hljóðbók

| Engar vísanir/No TrackBacks

Út er komið á hljóðbók smásagnasafnið Milli trjánna eftir Gyrði Elíasson, bókin sem hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011. Sigurður Skúlason leikari les sögurnar 47, sem einkennast af þeim áreynslulausa og myndríka stíl sem prýðir verk höfundarins. Í sögunum kallast umfjöllunarefnin ennfremur á við fyrrri sögur Gyrðis og bregður fyrir ýmisskonar óhugnaði og furðum, einsemd, draumum, ferðalögum, bernskuminningum og framtíðarsýnum.

Milli trjánna undirstrikar þá markvissu þróun sem orðið hefur í sagnaveröld Gyrðis í átt til eindregnari efnistaka, um leið og við erum minnt á grunngildi tilvoru okkar í þessum fjölbreytti en þó heildstæðu smásögum.

Hljóðbókin er  5:40  klst. að lengd á einum mp3 diski, sem hægt er að spila í öllum dvd spilurum, tövlum og mp3 spilurum. Georg Magnússon sá um hljóðritun. Kápuhönnun var í höndum Aðalsteins S. Sigfússonar.

Milli_trjanna.jpg

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/173

Efni