Sálgæslan - Dauði og djöfull

| Engar vísanir/No TrackBacks

Dauði og djöfull er titill nýrrar plötu Sálgæslunnar, hljómsveitar sem skartar óvæntri samsetningu topp listamanna úr ólíkum geirum.  Andrea Gylfadóttir og Stefán Hilmarsson syngja, Sigurður Flosason leikur á saxófóna, Þórir Baldursson á Hammond orgel og Einar Scheving á trommur.  Soul, blús og jazz renna saman í ólíkum hlutföllum undir  taktföstum hljóðfæraslætti og húmorinn er aldrei langt undan.  Sjö aðrir hljóðfæaleikarar koma við sögu á disknum, en Þórir Úlfarsson gerði strengjaúsetningar og Sigurður Flosason blástursútsetningar. Tónlistin er öll eftir Sigurð Flosason, en textar ýmist eftir hann eða Aðalstein Ásberg Sigurðsson.   

DIM 51 Daudiogdjofull.jpg


Upptökur fóru fram í Hljóðveri FÍH og Furunni í júní og júlí 2011. Upptökumaður var Þórir Úlfarsson, en hljóðblöndun önnuðust Þórir Úlfarsson og Hafþór Karlsson. Vilborg Anna Björnsdóttir hannaði útlit og ljósmyndir tók Hörður Ellert Ólafsson.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/172

Efni