Hljómsveitin Sálgæslan heldur tónleika í Salnum í Kópavogi fimmtudaginn
3. nóvember kl. 20:30. Hljómsveitin sendi nýverið frá sér geisladiskinn Dauði
og djöfull sem fengið hefur frábæra dóma. Á diskinum syngja
stórsöngvararnir Andrea Gylfadóttir og Stefán Hilmarsson lög Sigurðar
Flosasonar við texta sem eru ýmist eftir hann eða Aðalstein Ásberg Sigurðsson.
Aðrir hljóðfæraleikarar eru Hammond-orgelleikarinn Þórir Baldursson og
trommuleikarinn Einar Scheving. Soul, blús og jazz renna saman í ólíkum
hlutföllum undir taktföstum hljóðfæraslætti og húmorinn er aldrei langt undan.
Þess má geta að Andrea Jónsdóttir, gagnrýnandi Rásar 2 gaf diskinum 9 af 10 í
einkunn og Trausti Júlíusson gagnrýnandi Fréttablaðsins segir m.a. í fjögurra
stjörnu dómi sínum: „Gæða tónlist flutt af tilfinningu og með tilþrifum. Fínar
lagasmíðar og góður flutningur" ****.
Forsala á
salurinn.is
Forsala á
