Recently in Fréttir Category

Agnar Már bæjarlistamaður Garðabæjar 2010

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks
Agnar Már Magnússon píanóleikari hefur verið útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar árið 2010. Nýjasti geisladiskur hans Kvika kom út hjá Dimmu sl. haust, en áður hefur hann sent frá sér m.a. Láð (Dimma 2007) og Ég um þig (ásamt Kristjönu Stefáns, Dimma 2005). Agnar Már tónskreytti ennfremur hljóðútgáfuna Ljóð eftir Sjón sem kom út hjá Dimmu 2008. Ekki alls fyrir löngu frumflutti Stórsveit Reykjavíkur ennfremur ný verk eftir Agnar Má við góðan orðstír.

Svavar Knútur í Kanada

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks
Svavar Knútur tekur þátt í alþjóðlegu tónlistar- og kvikmyndahátíðinni North by North East í Toronto. Svavari var boðið að halda tvenna tónleika á hátíðinni, annars vegar í Cameron House og hins vegar í Rancho Relaxo. Svavar mun nýta ferðina til Kanada og flytja tónlist sína  á 17. júní hátíð Íslendingafélagsins íToronto og ennfremur koma fram á einum tónleikum utan NXNE svavar-knutur-image1-200x133.jpghátíðarinnar.

Svavar Knútur hefur gert víðreist það sem af er ári til að fylgja eftir geisladisknum Kvöldvöku og var m.a. á tónleikaferðalagi um Ástralíu frá byrjun janúar og fram á vor. Þá fór hann í stutta tónleikaferð til Parísar, þar sem honum var mjög vel tekið á þrennum tónleikum. Auk þess var hann fyrir skemmstu í Svíþjóð og Bretlandi, en framundan er íslenskt tónlistarsumar þar
sem hann kemur víða við.

Dvergasteinn kominn út á finnsku

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks
Dvergasteinn_finnska forsidan.jpg

Barnabókin Dvergasteinn eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson kom út á finnsku fyrr í mánuðinum hjá Bokförlaget Idun í þýðingu Päivi Kumpulainen  með nýjum myndskreytingum eftir finnska teiknarann Timo Koljonen. Dvergasteinn er þriðja bók Aðalsteins sem kemur út í Finnlandi, en áður hefur forlagið Idun gefið út bækur hans Brúin yfir Dimmu og Ljósin í Dimmuborg.

Aðalsteinn Ásberg kom fram á norrænum dögum í bænum Kuopio í síðustu viku og kynnti þá meðal annars Dvergastein, auk þess að heimsækja skóla og leikskóla þar sem hann flutti ljóð og söngva, en þar var þýðandinn Marjakaisa Matthíasson honum til fulltingis, en hún hefur auk Dimmu-bókanna þýtt bæði ljóð og söngtexta eftir hann.

Á finnsku hefur Dvergasteinn hlotið aðeins lengra nafn en á íslensku eða Haltia      joka kadotti hohtokivensä sem þýðir Dvergurinn sem glataði gljásteini. Bókaforlagið Idun gefur út þýddar barnabækur á finnsku og sænsku. Sjá nánar á www.idun.fi

Cornelis Vreeswijk í Norræna húsinu

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks

Guðrún Gunnars og Aðalsteinn Ásberg flytja

úrval úr verkum söngvaskáldsins vinsæla í tali og tónum

Gunnar Gunnarsson, píanó - Jón Rafnsson, kontrabassi


Takmarkaður sætafjöldi. Forsala á midi.is Miðvikudag 24. febrúar kl. 21 - föstud.  26. febrúar kl. 21           lau.  27/2 kl. 21  Thumbnail image for kynnmynd_CV_norraenahus.jpg

lau.  6/3 kl. 21
fös.12/3 kl. 21

 

Í kjölfar afar vel heppnaðrar útgáfu og tónleika um land allt á síðasta ári er nú efnt til nýstárlegrar tónleikaraðar í Norræna húsinu þar sem fléttað er saman tónlist og frásögn af lífi þessa einstaka trúbadúrs. Guðrún og Aðalsteinn gera Vreeswijk verðug skil og eðalfínir textar og lög njóta sín til fulls.

Dagskráin verður flutt í örfá skipti og sætafjöldi er takmarkaður. Veitingastaðurinn Dill býður upp á tvíréttaðan matseðil á tilboðsverði sýningardagana.   Kvöldskemmtun í sérflokki fyrir unnendur góðrar tónlistar!


Það sem hverfur í Þjóðmenningarhúsinu

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks

Ragnheiður Gröndal - Sigurður Flosason - Egill Ólafsson

ásamt Kjartani Valdemarssyni og Matthíasi Hemstock

á tónleikum sunnudaginn 14. febrúar kl. 20

 

Í tilefni af útkomu geisladisksins Það sem hverfur og vetrarjazzi í Reykjavík er efnt til tónleika í Þjóðmenningarhúsinu þar sem flutt verður ný tónlist Sigurðar Flosasonar við eyðibýlaljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Tónlistin kom út á samnefndum geisladiski í nóvember sl og hlaut mjög góða dóma. Þetta er dramatísk tónlist  þar sem jazz, popp, sígild tónlist og þjóðleg stef renna saman og skapa bræðing sem hæfir efninu vel. Flytjendur eru söngvararnir Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson, Sigurður Flosason á ýmis blásturshljóðfæri, Kjartan Valdemarsson á píanó og hljómborð og Matthías Hemstock á trommur, trommuheila og náttúruhljóð.
 
 
Aðeins þetta eina sinn. Takmarkaður sætafjöldi!

 Það sem hverfur_flytjendur.jpg

Miðaverð: 2.500,- Miðasala á midi.is

Út er komin ljóðabókin Segðu mér og segðu ... eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Í bókinni eru yrkisefnin af ýmsum toga og fortíð og nútíð fléttast saman. Þjóðleg stef, romsur og óhefðbundin kvæði kallast á. Áður hefur Aðalsteinn Ásberg sent frá sér á annan tug frumsaminna og þýddra ljóðabóka, þar á meðal kveðskap fyrir börn í Romsubókinni sem kom út fyrir fsegðu_mer_kapa_lowres.jpgáeinum árum. Ennfremur hefur hann skrifað skáldsögur og smásögur fyrir unga lesendur, auk þess að semja tónlist og fjölda söngljóða sem notið hafa vinsælda.

 

Segðu mér og segðu ... er prýdd veglegum litmyndum eftir Lindu Ólafsdóttur, sem nýlega lauk mastersnámi myndskreytingum frá Academy of Art university í San Francisco og útskrifaðist með hæstu einkunn. Áður hafði hún lokið námi úr grafíkdield Listaháskóla Íslands. Bókin er frumraun Lindu á sviði bókaskreytinga, en hún hefur tekið þátt í samsýningum listamanna í San Francisco og hlotið verðlaun fyrir verk sín.  


Jafnhliða prentaðri útgáfu kemur Segðu mér og segðu ... út á hljóðbók í lestri höfundar.

Tónskáldið og saxófónleikarinn Sigurður Flosason hefur sent frá sér nýjan disk með sönglagasyrpu við ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Á diskinum sem ber heitið Það sem hverfur er að finna 14 tónsmíðar Sigurðar við ljóð Aðalsteins úr hinni rómuðu ljóða- og ljósmyndabók Eyðibýli, sem hann og Nökkvi Elíasson gáfu út fyrir fáeinum árum, verki sem hverfist um horfinn heim sem þó stendur flestum ótrúlega nærri.

 

Sigurði til fulltingis á nýja diskinum eru söngvararnir Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson, ásamt Kjartani ValdeDIM_45_kapa_netuppl.jpgmarssyni, sem leikur á píanó , hljómborð, orgel, harmóníkku og hljóðgerfla, og Matthíasi Hemstock á trommur, slagverk , trommuheila og náttúruhljóð.

 

Tónsmíðarnar á Það sem hverfur eru af ýmsum toga og hreint ekki af ómenguðum jazzrótum heldur taka mið af sígildri tónlist, poppi og þjóðlögum, en allt rennur það á vissan hátt saman í bræðingi sem hæfir ljóðunum og skapar um leið magnaða stemmningu.

Tónlist hamingjunnar eftir Völu Þórsdóttur

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks

Dimma hefur gefið út örsagnasafnið Tónlist hamingjunnar eftir Völu Þórsdóttur og er það fyrsta bók höfundarins sem áður hefur getið sér gott orð fyrir leikrit sín bæði hérlendis og erlendis, m.a. einleikinn Háaloft og Eldhús eftir máli, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu. Í Tónlist hamingjunnar sýnir höfundurinn á sér nýja hlið þótt tenglsin við leikverkin séu ef til vill undirliggjandi og sumar sagnanna eigi sér rætur í þáttagerð fyrir sjónvarp.

Örsögurnar er 52 talsins og eiga það sameiginlegt að birta sérkennilega mynd af samtímanum. Persónur og atburðir koma stöðugt á óvart og fáránleikinn er sjaldnast langt undan. Geisladiskur með lestri höfundar fylgir bókinni og svo skemmtilega vill til að verkið kemur samtímis út á Íslandi og í Tyrklandi.

Geisladiskur með lestri höfundar fylgir bókinni.

tonlist_hamingjunnar_kapa_lowres.jpg

Ballið á Bessastöðum komin á hljóðbók

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks
ballid_bessast_hljodbok_kapa_lowres.jpg

Dimma hefur gefið út á hljóðbók hina fjörugu og ærslafullu sögu Ballið á Bessastöðum eftir Gerði Kristnýju í lestri höfundar. 

Sagan er um forseta, þrjá forsetaritara, gröfukarla og hjólabrettastelpu, hundrað ára gamla konu og krakkaskara sem lendir í vandræðum við Tjörnina. Kona úr Mývatnssveit, sem veit heil ósköp um ský, kemur líka við sögu. Hver getur ímyndað sér ball á Bessastöðum með öllum þessum persónum og mörgum fleiri? Saga sem gleður bæði börn og fullorðna.

Framhald sögunnar, Prinsessan á Bessastöðum, en nýkomin út í prentaðri útgáfu, en Ballið á Bessastöðum er fyrsta hljóðbók höfundarins fyrir unga lesendur.


Tónleikaupptökur Agnars Más komnar út

| Engar umsagnir/No Comments | Engar vísanir/No TrackBacks

Agnar Már Magnússon píanóleikari sendir nú frá sér nýjan geisladisk um þessar mundir með frumsaminni jazztónlist og nefnist hann Kvika. Diskurinn hefur að geyma upptökur frá tónleikum á jazzhátíð í Reykjavík 2008, þar sem fram komu ásamt Agnari Má þeir Ben Street bassaleikari og Bill Stewart  trommuleikari, en báðir eru þeir vel þekktir bandarískir jazztónlistarmenn. Svo skemmtilega vill til að þeir hafa áður hljóðritað efni með Agnari þegar hann tók upp fyrsta disk sinn í New York og gaf út hjá Fresh Talent útgáfunni árið 2001.  Á nýja diskinum eru 9 tónsmíðar eftir Agnar.

 

Áður hefur Dimma gefið út með Agnari Má hinn rómaða disk Láð, sem kom út fyrir tveimur árum, Atlantshaf (Agnar Már, Jóel Pálsson, Gunnlaugur Guðmundsson og Einar Scheving) 2006 og Ég um þig, sem hann gerði í félagi við Kristjönu Stefánsdóttur jazzsöngkonu árið 2005.

 KVIKA_COV_X_netuppl.jpg

Hljóðritun á tónleikunum og eftirvinnslu annaðist Sveinn Kjartansson. Um ljósmyndun og hönnun umslags sá Högni Sigurþórsson.                                                                                  

Efni