Draupner

Þjóðlagahljómsveitin Draupner frá Helsingjalandi í Svíþjóð var stofnuð á annan dag jóla árið 1994. Síðan þá hefur hún leikið víða um lönd og haldið upp merkjum þjóðlagatónlistarinnar. Árið 1995 náði hljómsveitin fyrst eyrum almennings þegar hún tók þátt í tónlistarkeppninni Musik Direkt og sópaði til sín fernum verðlaunum af þeim sjö sem veitt voru í keppninni.

Þjóðlagatónlistin frá Helsingjalandi er fyrirferðarmest á tónleikaskrá Draupners, en einnig má þar greina áhrif frá öðrum landshlutum. Spilagleðin er sett í fyrirrúm, enda er hljómsveitin þekkt fyrir skemmtilega sviðframkomu og vandaðan flutning.
Draupner skipa þeir Henning Andersson (fiðla og lágfiðla)), Görgen Antonsson (fiðla, 5 strengja lágfiðla og áttundarfiðla) og Tomas Lindberg (gítar, mandóla, búsúkí, mandola).

Draupner hefur ferðast víða um lönd og komið fram á mörgum tónlistarhátíðum, m.a. í Frakklandi, Eistlandi, Álandseyjum, Noregi, Grænlandi, Bandaríkjunum, Serbíu-Svartfjallalandi og á Íslandi.
Samvinna Draupners og Önnu Pálinu og Aðalsteins Ásbergs hófst eftir að þau kynntust á þjóðlagahátíðinni í Nuuk á Grænlandi sumarið 1999. Þau komu fram saman á Menningarnótt í Reykjavík sumarið 2002, en síðar á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði 2003 og aftur á Menningarnótt í Reykjavík 2004, áður en þau hljóðrituðu plötuna Sagnadans, sem kom út haustið 2004.

Helstu hljóðritanir:
Draupner, 2001
Arvet, 2003
Sagnadans (ásamt Önnu Pálínu), 2004

Meira um Draupner á draupner.nu

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/64

Efni