Guðrún Gunnarsdóttir

Guðrún Gunnarsdóttir (1963) á að baki farsælan söngferil í tvo áratugi. Hún hefur víða komið við og sungið inn á fjölda platna með ýmsum listamönnum og átt vinsæl lög á mörgum safnplötum, þ.á.m. Minningaplötunum og Íslandslögum. Hljóðritanir hennar gætu þannig fyllt margar hljómplötur. Guðrún hefur einnig tekið þátt í uppfærslu söngleikja og ber þar hæst hlutverk Maríu Magdalenu í uppfærslu á Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu 1995 og einnig hefur hún komið fram í tónlistardagskrám af ýmsu tagi.
Fyrsta sólóplata Guðrúnar, Óður til Ellyjar, var tekin upp á samnefndum minningartónleikum hennar um Elly Vilhjálms í Salnum, Kópavogi 14. nóv. 2002.

Helstu hljóðritanir:

Cornelis Vreeswijk, Dimma 2009

Umvafin englum, Sena, 2008

Eins og vindurinn, Dimma 2004

Óður til Ellyjar, Dimma 2003

Fagra veröld (ásamt Agli Ólafssyni), AB, 1993

Ennfremur ´samt Friðriki Ómari:
Ég skemmti mér (Sena 2005), Ég skemmti mér í sumar (Sena 2006) og Ég skemmti mér um jólin (Sena 2007)Thumbnail image for GudrunG_close_72.jpg


Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/61

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni