Agnar Már Magnússon - Kvika

Kvika hefur að geyma upptökur frá tónleikum Agnars Más á jazzhátíð í Reykjavík 2008, þar sem fram komu ásamt honum tveir valinkunnir bandarískir jazzleikarar, þeir Ben Street á kontrabassa og Bill Stewart á trommur. Svo skemmtilega vill til að þeir hafa áður hljóðritað efni með Agnari þegar hann tók upp fyrsta disk sinn í New York og gaf út hjá Fresh Talent útgáfunni árið 2001. Á nýja diskinum eru 9 tónsmíðar eftir Agnar.

 

Áður hefur Dimma gefið út með Agnari Má hinn rómaða disk Láð, sem kom út fyrir tveimur árum, Atlantshaf (Agnar Már, Jóel Pálsson, Gunnlaugur Guðmundsson og Einar Scheving) 2006 og Ég um þig, sem hann gerði í félagi við Kristjönu Stefánsdóttur jazzsöngkonu árið 2005.

 

Hljóðritun á tónleikunum og eftirvinnslu annaðist Sveinn Kjartansson. Um ljósmyndun og hönnun umslags sá Högni Sigurþórsson.

                                                                              

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/139

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni