Kristjana Stefáns - Better Days Blues

Kristjana Stefáns

Kristjana Stefánsdóttir jazzsöngkona sendir nú frá sér nýja sólóplötu sem hlotið hefur nafnið Better Days Blues. Platan kemur út 20. ágúst, en útgáfutónleikar verða á Jazzhátíð Reykjavíkur 30. ágúst. Á plötunni eru 13 lög, þar af 3 frumsamin lög eftir söngkonuna sjálfa. Með Kristjönu leika þeir Agnar Már Magnússon á pianó og hammondorgel, Ómar Guðjónsson á gítar, Scott McLemore á trommur, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa, Gunnar Hrafnsson á kontrabassa, Vignir Þór Stefánsson á pianó, Sigurður Flosason á altósaxófónn og Ari Bragi Kárasson á trompet. Better Days Blues er 5. sólóplata Kristjönu en tvær af plötum hennar hafa jafnframt komið út hjá erlendum útgáfum í Japan og S-Kóreu. Kristjana mun fylgja plötunni eftir með fjölda tónleika í haust, hérlendis og erlendis. Hljóðritun fór fram í Hljóðveri FÍH. Aron Þór Arnarson hljóðritaði. Umslag hannaði Gunnar Víðir Þrastarson.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/20

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni