Kristjana Stefáns/Agnar Már - Ég um þig

Kristjana & Agnar

Kristjana Stefánsdóttir og Agnar Már Magnússon flytja sígild popplög í nýjum djassútsetningum ásamt Drew Gress á bassa og John Hollenbeck á trommur.

„Stórkostleg djassgeggjun! Ég er heilluð upp úr skónum."
* * * * * Heiða - Blaðið

Á Ég um þig eru 11 lög, sem flest nutu mikilla vinsælda á tímum nýbylgju og rómantíkur, þ.á.m. Abba-lagið Knowing me, Knowing You og Owner Of a Lonely Heart sem hljómsveitin Yes flutti í eina tíð, All I Want Is You úr smiðju U2 og Radiohead lagið No Surprises. Titillag plötunnar samdi Agnar Már, en textinn við það er eftir Arinbjörn Vilhjálmsson.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/70

Efni