Gunnar Gunnarson - Gnótt

Gnótt er sjötti geisladiskur Gunnars Gunnarssonar, en að auki hefur hann sent frá sér fjóra diska í samstarfi við Sigurð Flosason. Á Gnótt nýtur hann fulltingis Tómasar R. Einarssonar bassaleikara, Ómars Guðjónssonar gítarleikara og Matthíasar Hemstock slagverksleikara. 
Gunnar er sem fyrr fundvís á íslensk úrvalslög sem hann færir í nýjan búning og bætir hér mörgum gullmolum við sitt ágæta lagasafn. Á Gnótt leikur hann m.a. lög eftir Atla Heimi Sveinsson, Gunnar Þórðarson, Jón Nordal, Magnús Blöndal Jóhannsson og Freymóð Jóhannsson, en að auki íslensk þjóðlög og eitt frumsamið lag.

Fyrri diskar Gunnars eru
HÚM og HRÍM, en á þeim léku með honum þrír kontrabassaleikarar, þeir Tómas R. Einarsson, Jón Rafnsson og Gunnar Hrafnsson, og einleiksdiskarnir SKÁLM, STEF og DES. Einnig hefur tvöfaldi diskurinn BEST með úrvalsefni hans verið gefinn út fyrir Asíumarkað. 

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/164

Efni