Gunnar Gunnarsson - Hrím

Á þessari plötu leikur píanistinn Gunnar Gunnarsson þjóðlega íslenska tónlist, en honum til fulltingis eru þrír kontrabassaleikarar, þeir Tómas R. Einarsson, Gunnar Hrafnsson og Jón Rafnsson. Hrím er í sama anda og hin vinsæla plata Gunnars, Húm, sem kom út fyrir þremur árum. Áður hefur Gunnar Gunnarsson sent frá sér þrjár píanóplötur í svonefndum skálm-stíl, SKÁLM, STEF og DES, auk þess sem úrval af píanóhljóðritunum hans hefur verið gefið út fyrir Asíumarkað. Þjóðlög og lög eftir íslensk tónskáld, þ.á.m. Nú vil ég enn í nafni þínu, Vísur Vatnsenda-Rósu, Klementínudans, Tunglið, tunglið, taktu mig! og Sofðu unga ástin mín og Austan kaldinn á oss blés. Hrím var hljóðrituð í Hljóðveri FÍH í júní 2008. Hljóðritun annaðist Hafþór Karlsson. Vandaður bæklingur með ljósmyndum Nökkva Elíassonar og upplýsingum á íslensku og ensku fylgir plötunni. Vilborg Anna Björnsdóttir hannaði umbúðir.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/19

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni