Gunnar Gunnarsson - Húm

Gunnar Gunnarsson

Gunnar Gunnarsson píanóleikari hefur sent frá sér nýja geislaplötu sem nefnist HÚM. Á plötunni leikur hann íslenska og norræna tónlist, en honum til fulltingis eru þrír kontrabassaleikarar, þeir Tómas R. Einarsson, Gunnar Hrafnsson og Jón Rafnsson.

Húm inniheldur lög eftir íslensk og norræn tónskáld, þ.á.m. Hjá lygnri móðu eftir Jón Ásgeirsson, Nótt eftir Árna Thorsteinsson, Tvær stjörnur eftir Megas og álenska þjóðlagið Vem kan segla. Að aukir eru tvö lög eftir Gunnar sjálfan, Húm og Óttuvals.
HÚM var hljóðrituð í Hljóðveri FÍH í júní sl.. Hljóðritun annaðist Gunnar Smári Helgason. Vandaður bæklingur með ljósmyndum Nökkva Elíassonar og upplýsingum á íslensku og ensku fylgir plötunni. Vilborg Anna Björnsdóttir hannaði umbúðir.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/65

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni