Sigurður Flosason/Kristjana Stefáns - Hvar er tunglið?

Kristjana Stefáns - Sigurður Flosason

Tveir samhljóma geisladiskar með 24 jazzsönglögum úr smiðju tónskáldsins Sigurðar Flosasonar og ljóðskáldsins Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar.
Hér er um að ræða stærsta einstaka framlag til sunginnar íslenskrar jazztónlistar frá upphafi vega, um 100 mínútur af fjölbreyttri tónlist, sprottinni úr íslenskum jarðvegi en með alþjóðlegum blæ.

Kristjana Stefánsdóttir söngkona flytur öll lögin ásamt Jazzkvartett Sigurðar Flosasonar. Auk Sigurðar sem leikur á saxófón skipa kvartettinn Eyþór Gunnarsson á píanó, Pétur Östlund á trommur (kemur frá Svíþjóð) og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa.
Sigurður Flosason hefur áður sent frá sér 10 geisladiska í eigin nafni, en hér sýnir hann á sér nýja hlið. Aðalsteinn Ásberg hefur sent frá sér fjölda ljóðabóka, auk söngljóða á meira en tug geisladiska. Samstarf þeirra félaga er á margslungið, en áður hefur Sigurður m.a. tónskreytt ljóðaúrval Aðalsteins.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/68

Efni