K tríó - Rekaviður

DIM 44 trio.jpg

K Tríó hefur sent frá sér nýjan geisladisk sem ber heitið Rekaviður. Á honum er frumsamið efni eftir meðlimi tríósins, sem hefur leikið við góðan orðstír hérlendis og á Norðurlöndum sl. misseri. Píanóleikarinn Kristján Martinsson stofnaði K Tríó í ársbyrjun 2008, en ásamt honum skipa tríóið Pétur Sigurðsson bassaleikari og Magnús Trygvason Eliassen trommuleikari. K Tríó kom fram á Jazzhátíð Reykjavíkur sumarið 2008 og í september sama ár var það fulltrúi Íslands í samkeppni ungra norrænna jazztónlistarmanna í Kaupmannahöfn. Fór K Tríó með sigur af hólmi í þeirri keppni og gaf í kjölfarið út sinn fyrsta geisladisk sem hlaut afbragðs góðar viðtökur.  

 

Rekaviður inniheldur frumsamið efni sem tríóið hljóðritaði í lok desember 2009 í Hljóðveri FÍH. Upptökur, hljóðblöndun og tónjöfnun var í höndum Birgis Jóns Birgissonar. Hrafnhildur Helgadóttir hannaði umslag.


Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/156

Efni