Kristjana Stefáns & Svavar Knútur - Glæður

Á Glæðum meðThumbnail image for DIM52_Glaedur_COV_300.jpg Kristjönu Stefáns og Svavari Knúti er að finna fjórtán hugljúf lög, þar af þrjú frumsamin, en platan varð til upp úr samstarfi þessa músíkalska pars, sem undanfarin ár hefur haldið fjölda dúettatónleika við sívaxandi vinsældir.

 

Til helstu perla sem skreyta Glæður má nefna hin sígildu íslensku sönglög Við gengum tvö, Í dag skein sól og Enn syngur vornóttin, en til alþjóðlegra stórsmella má nefna Abbalögin One of us og When all is said and done, auk hins sígilda lags hljómsveitarinnar Styx, Boat on the river.

 

Glæður var öll hljóðrituð á einu kvöldi í Stúdíó Sýrlandi með völdum hópi áheyrenda, með það í huga að gæða hljómplötuna þeim kostum sem einkenna lifandi flutning. Einfaldleiki og látleysi ráða ríkjum og standa þau Kristjana og Svavar ein með kassagítar og fáein viðbótarhljóðfæri í stöku lagi. Þá er á plötunni að finna útsetningar og útfærslur sem ekki hafa heyrst áður á þekktum lögum.

 

Kristjönu og Svavari til aðstoðar komu þeir Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson kontrabassaleikari, Daði Birgisson hljómborðsleikari og Taylor Selsback munnhörpuleikari.

 

Umslag og bækling hannaði Högni Sigurþórsson

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/178

Efni