Agnar Már Magnússon - Láð

Agnar Már Magnússon

Agnar Már Magnússon píanóleikari sendir frá sér nýjan geisladisk sem hann nefnir Láð. Agnar Már er í fremstu röð íslenskra jazzpíanista og hefur hlotið mikið lof bæði heima og erlendis fyrir fágaðan og frumlegan stíl. Hér sýnir hann á sér nýja og spennandi hlið með frumsömdum tónsmíðum sem vísa beint og óbeint í íslensk þjóðlög.

Áður hefur Agnar Már sent frá sér plöturnar 01 og 1900, auk tveggja platna með tríóinu B-3, píanódúettaplötunnar Tónn í tómið ásamt Ástvaldi Traustasyni og plötunnar Ég um þig, sem hann gerði í félagi við Kristjönu Stefánsdóttur jazzsöngkonu.
Meðleikarar Agnars Más á Láði eru þeir Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur, auk blásarasveitar sem skipuð er Sigurði Flosasyni á alt flautu, Stefáni Jóni Bernharðssyni á franskt horn, Rúnari Óskarssyni á bassaklarinett og Rúnari Vilbergssyni á fagott.
Hljóðritun fór fram í Hljóðveri FÍH. Óskar Páll Sveinsson hljóðritaði. Um ljósmyndun og hönnun umslags sá Högni Sigurþórsson.

dim_27_umslag_medium.jpg

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/39

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni