Arni Heiðar Karlsson - Mæri

Mæri nefnist geisladiskur djasspíanóleikarans Árna Heiðars Karlssonar. Á diskinum kemur fram tríó Árna, en það skipa auk hans Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur.

Mæri hefur að geyma átta frumsamin verk, en áður hefur Árni Heiðar sent frá sér geisladiskinn Q sem tilnefndur var til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem besti jazzdiskurinn árið 2001.

Árni Heiðar stundaði nám við Tónlistarskóla FÍH og lauk burtfarapróf í djasspíanóleik 1998. Eftir það sótt hann nám við Listaháskólann í Amsterdam og lauk árið 2000 burfararprófi í klassískum píanóleik úr Tónlistarskólanum í Reykjavík. Mastersgráðu í píanóleik lauk hann síðan frá College-Conservatory of Music í Háskólanum í Cincinnati haustið 2004. Á tímabilinu 2003-2005 vann hann með hljómsveitinni Deepgroove í Bretlandi og náði lagið didiwahwah 5. sæti vinsældarlista BBC Dance. Árni Heiðar hefur um árabil verið virkur í íslensku tónlistarlífi og spilað með mörgum að helstu djasstónlistarmönnum landsins auk þess að kenna við ýmsa tónlistarskóla og Listaháskólann.

Mæri var tekinn upp í sal SÁÁ í Efstaleiti í maí sl. Hljóðritun og hljóðblöndun annaðist Georg Magnússon. Útlitshönnun var í höndum Vilborgar Önnu Björnsdóttir og umslagið prýða ljósmyndir eftir Christer Lund.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/136

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni