Andrés Þór - Nýr dagur

Andrés Þór

Andrés Þór Gunnlaugsson hefur sent frá sér nýjan geisladisk með frumsaminni jazztónlist sem hefur hlotið nafnið Nýr dagur. Jazzkvartett Andrésar leikur á diskinum, en auk Andrésar sem leikur á gítar skipa kvartettinn Sigurður Flosason á altó saxófón, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur.

Nýr dagur er fyrsti geisladiskur Andrésar í eigin nafni og eingöngu með frumsömdum verkum hans, en fyrir tveimur árum kom út diskurinn It was a very good year með Hollensk-íslenska tríóinu Wijnen, Winter & Thor. Á þeim diski var m.a. verkið Þórdísardans eftir Andrés, en það var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2004 sem jazztónsmíð ársins.
Nýr dagur var hljóðritaður í hjóðveri FÍH. Upptökumaður var Stefán Örn Gunnlaugsson, en um hljóðblöndun og hljómjöfnun sá Gunnar Smári Helgason. Hönnun umslags var í höndum Kristjáns Freys.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/87

Efni