Kristjana Skúladóttir - Obbosí!

Kristjana Skúladóttir

Geisladiskur með frumsaminni tónlist fyrir yngstu hlustendurna. Höfundur og flytjandi er Kristjana Skúladóttir, söng- og leikkona. Á OBBOSÍ eru 14 ný lög, samin með það í huga að yngstu börnin skilji. Umfjöllunarefnin eru fjölbreytileg en eiga það sameiginlegt að lýsa heiminum með augum barnsins í sinni einföldu mynd og hlutum sem það lærir snemma að þekkja. Kristjönu til fulltingis er einvala lið hljóðfæraleikarara: Agnar Már Magnússon, píanó, hljómborð, marimba og harmónikka, Ásgeir Ásgeirsson, gítar, Gunnar Hrafnsson, kontrabassi og Einar Scheving, trommur. OBBOSÍ er fyrsti geisladiskur Kristjönu Skúladóttur sem útskrifaðist sem leikkona fyrir fimm árum. Hún hefur getið sér gott orð fyrir leik sinn og söng í leikhúsunum meðal annars með Vesturporti, Á Senunni, Dansleikhúsi með Ekka, Borgarleikhúsinu, Strengjaleikhúsinu og í Austurbæ auk þessa að hafa starfað sjálfstætt sem söngkona og skemmtikraftur. OBBOSÍ var hljóðrituð í hjóðveri FÍH. Agnar Már Magnússon stjórnaði upptökum, en upptökumaður var Styrmir Hauksson. Um hljóðblöndun og hljómjöfnun sá Gunnar Smári Helgason. Myndskreytingar og hönnun umslags var í höndum Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur.

G

dim23_medium.jpg

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/43

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni