Sálgæslan - Dauði og djöfull

Sálgæslan er hljómsveit sem skartar óvæntri samsetningu topp listamanna úr ólíkum geirum.  Andrea Gylfadóttir og Stefán Hilmarsson syngja, Sigurður Flosason leikur á saxófóna, Þórir Baldursson á Hammond orgel og Einar Scheving á trommur. Á þessum geisladiski sem ber heitið Dauði og djöfull renna soul, blús og jazz saman í ólíkum hlutföllum undir  taktföstum hljóðfæraslætti og húmorinn er aldrei langt undan. Thumbnail image for DIM 51 Daudiogdjofull.jpgSjö aðrir hljóðfæaleikarar koma við sögu á disknum, en Þórir Úlfarsson gerði strengjaúsetningar og Sigurður Flosason blástursútsetningar. Tónlistin er öll eftir Sigurð Flosason, en textar ýmist eftir hann eða Aðalstein Ásberg Sigurðsson.   

 
Upptökur fóru fram í Hljóðveri FÍH og Furunni í júní og júlí 2011. Upptökumaður var Þórir Úlfarsson, en hljóðblöndun önnuðust Þórir Úlfarsson og Hafþór Karlsson. Vilborg Anna Björnsdóttir hannaði útlit og ljósmyndir tók Hörður Ellert Ólafsson.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/177

Efni