Sigurður Flosason - Það sem hverfur

Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson flytja sönglagasyrpu Sigurðar Flosasonar við ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar.

 

Á diskinum er að finna 14 tónsmíðar Sigurðar við ljóð Aðalsteins úr hinni rómuðu ljóða- og ljósmyndabók Eyðibýli, sem hann og Nökkvi Elíasson gáfu út fyrir fáeinum árum, verki sem hverfist um horfinn heim sem þó stendur flestum ótrúlega nærri.


Sigurði Flosason leikur á sópran-, alt- og barítónsaxófóna, klarinett, bassaklarinett og bassaflautu, Kjartan Valdemarsson á píanó , hljómborð, orgel, harmóníkku og hljóðgerfla, og Matthíasi Hemstock á trommur, slagverk , trommuheila og náttúruhljóð.

 

Tónsmíðarnar á diskinum eru af ýmsum toga og hreint ekki af ómenguðum jazzrótum heldur taka mið af sígildri tónlist, poppi og þjóðlögum, en allt rennur það á vissan hátt saman í bræðingi sem hæfir ljóðunum og skapar um leið magnaða stemmningu.

 

Hljóðritun Það sem hverfur fór fram í apríl og september 2009 í Hljóðveri FÍH. Hafþór Karlsson sá um upptökur og eftirvinnslu, en Finnur Hákonarson hljómjafnaði. Vilborg Anna Björnsdóttir hannaði útlit, en ljósmyndir eftir Nökkva Elíasson prýða umslag og bækling.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/146

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni