Sigurður Flosason/Gunnar Gunnarsson - Sálmar tímans

Fjórði diskur tvíeykisins Sigurðar Flosasonar saxófónleikara og Gunnars Gunnarssonar organista er kominn út og nefnist Sálmar tímans.  Á diskinum er að finna 13 útsetningar Gunnars og Sigurðar á ólíkum sálmalögum, en spuni er sem fyrr miðlægur í nálgun dúósins.  Sigurður og Gunnar hafa áður sent frá sér þrjá geisladiska; Sálma lífsins (2000), Sálma jólanna (2001) og Draumalandið (2004).  Diskar þeirra hafa notið fádæma vinsælda og fengið frábæra dóma.  Sálmar tímans er nokkurskonar sjálfstætt framhald af Sálmum lífsins, en eins og þar er hér spunnið um ólíka sálma, innlenda og erlenda, gamla og nýja, vinsæla og lítt þekkta. salmar_timans_cover.jpg

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/158

Efni