Kári Árnason - Úr skel

Kári Árnason

Úr skel er nýr geisladiskur með Kára Árnasyni og félögum, sem leika frumsamda jazztónlist. Ásamt Kára, sem leikur á trommur, eru flytjendur og höfundar úr fremstu röð íslenskra jazztónlistarmanna; Sigurður Flosason á altó-saxófón, Ómar Guðjónsson á gítar og Agnar Már Magnússon á hammond-orgel.
Geisladiskurinn er gefinn út til styrktar Umönnunarsjóði Árna Ibsens og rennur allur ágóði af sölu hans beint í sjóðinn.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/88

Efni