Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson - Segðu mér og segðu ...

Nýstárleg ljóðabók fyrir börn á öllum aldri. Yrkisefnin eru af ýmsum toga og fortíð og nútíð fléttast saman. Þjóðleg stef, romsur og óhefðbundin kvæði kallast á. Áður hefur Aðalsteinn Ásberg sent frá sér á annan tug frumsaminna og þýddra ljóðabóka, þar á meðal kveðskap fyrir börn í Romsubókinni sem kom út fyrir fáeinum árum. Ennfremur hefur hann skrifað skáldsögur og smásögur fyrir unga lesendur, auk þess að semja tónlist og fjölda söngljóða sem notið hafa vinsælda.

 

Segðu mér og segðu ... er prýdd veglegum litmyndum eftir Lindu Ólafsdóttur, sem nýlega lauk mastersnámi myndskreytingum frá Academy of Art university í San Francisco og útskrifaðist með hæstu einkunn. Áður hafði hún lokið námi úr grafíkdield Listaháskóla Íslands. Bókin er frumraun Lindu á sviði bókaskreytinga, en hún hefur tekið þátt í samsýningum listamanna í San Francisco og hlotið verðlaun fyrir verk sín.  

 

Bókin er 50 bls., innbundin. Vilborg Anna Björnsdóttir hannaði útlit.


Jafnhliða prentaðri útgáfu kemur Segðu mér og segðu ... út á hljóðbók í lestri höfundar.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/144

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni