Álagaeldur

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson

Álagaeldur eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson.   

Óðinn og Logi eiga heima í þorpinu Litluvík. Kobbi gamli í smiðjunni segir þeim söguna um fjársjóð Ráðhildar ríku og að ekki megi hrófla við Skiphólnum því þá brenni bærinn í Litluvík. En sagan er gömul og býlið Litlavík ekki lengur til. Strákarnir taka áhættuna og fara að leita fjársjóðsins en dragast um leið inn í spennandi atburðarás þar sem þeir kljást ekki eingöngu við dularfull álög heldur einnig hættulegan afbrotamann. Álagaeldur er skemmtileg og spennandi saga fyrir börn á aldrinum 7 - 12 ára.
Almenna bókafélagið gaf út 1993. UPPSELD!

Umsagnir:
"Höfundur segir mjög vel frá, hratt og lipurt. ... Vel sagt, skemmtilegt ævintýri, sem gleðja mun lesendur." (SHG - Mbl. 8.12.1993)

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/101

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni