Beinhvít ljóð eftir Gintaras Grajauskas

Beinhvít ljóð er eftir litháska skáldið Gintaras Grajauskas. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson íslenskaði.Grajauskas er vel þekkt ljóðskáld í heimalandi sínu og tilheyrir þeirri kynslóð rithöfunda sem komu fram á sjónarsviðið eftir að þjóðin endurheimti sjálfstæði sitt.

Í ljóðum hans rúmast bæði fjarvídd og nánd, en þau brúa líka á vissan hátt bil sem öðrum skáldum hefur ekki tekist að brúa. Undir hversdagslegu yfirborði blundar vænn skammtur af kímni, háði og ádeilu. Gintaras Grajauskas var einn þeirra erlendu höfunda sem sóttu Ísland heim á Alþjóðlegu bókmenntahátíðinni í Reykjavík 6. - 12. september 2009.

Beinhvít ljóð er úrval af efni úr fjórum síðustu ljóðbókum hans auk eftirmála um skáldið eftir þýðandann. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, hefur áður gefið út 5 söfn þýddra ljóða.

Bókin er  54 bls. í kilju. Vilborg Anna Björnsdóttir hannaði bókarkápu.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/134

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni