Karl-Erik Bergman - Ljóð á landi og sjó

Karl-Erik Begman

Ljóð á landi og sjó er úrval ljóða eftir Álandseyjaskáldið Karl Erik Bergman, sem Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson hefur valið og íslenkað. Karl-Erik Bergman er sjómaður og kunnur rithöfundur á Álandseyjum. Í skáldskap hans birtast hugleiðingar um lífið og tilveruna á sjó og landi - og margt á þar erindi við íslenska lesendur. Í þessu úrvali birtast 45 ljóð úr sjö bókum skáldsins frá árunum 1957 - 1993.
Útgáfuár 1996. Bókin er 63 bls. kilja

Úr dómum:
"Ljóð á landi og sjó er að öllu samanlögðu látlaust og greinargott úrval ljóða Karls-Eriks Bergmans. Yrkisefnin eru öll af líkum toga og snúast í grundvallaratriðum um tilvist mannsins í heiminum þar sem bjartsýn og tiltölulega léttlynd afstaða ræður ríkjum. Þýðing Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar virðist áreynslulaus og í fullu samræmi við innihald þessara ljóða." (JÖS - Mbl. 13.08.1996)

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/99

Efni