Sagði mamma

Hal Sirowitz

Ljóð eftir bandaríska skáldið Hal Sirowit í íslenskri þýðingu Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar.
Í þessari sérstæðu ljóðbók eru hversdagsleg heilræði sett fram og lagt út af þeim með grátbroslegum hætti. Efnið er þar af leiðandi kunnuglegt því margt er líkt með mæðrum og sonum hvar sem er í heiminum. Ást og umhyggja er auðvitað af hinu góða, en stundum er samt of langt gengið ...

Hal Sirowitz er Bandaríkjamaður, f. 1949, og býr í New York. Hann hefur sent frá sér sex ljóðabækur, en tvær þeirra Mother Said og My Therepist Said hafa notið mikilla vinsælda. Árið 1994 hlaut hann listamannalaun í heimalandi sínu og var nýlega útnefndur lárviðarskáld Queens hverfisins í New York til þriggja ára. Sagði mamma kom fyrst út 1996 og árið eftir birtist norsk útgáfa sem varð metsölubók þar í landi. Ljóð eftir Sirowitz hafa birst í safnritum og tímaritum og verið þýdd á tíu tungumál. Hann er auk þess vinsæll upplesari og hefur víða komið fram í sjónvarpi og á ljóðahátíðum.

Bókin kom fyrst út 2001.

Endurútgáfa í kilju 2006.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/98

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni