Vala Þórsdóttir - Tónlist hamingjunnar

Örsagnasafnið Tónlist hamingjunnar eftir Völu Þórsdóttur er það fyrsta bók höfundarins sem áður hefur getið sér gott orð fyrir leikrit sín bæði hérlendis og erlendis, m.a. einleikinn Háaloft og Eldhús eftir máli, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu. Í Tónlist hamingjunnar sýnir Vala á sér nýja hlið þótt tenglsin við leikverkin séu ef til vill undirliggjandi og sumar sagnanna eigi sér rætur í þáttagerð fyrir sjónvarp.

 

Örsögurnar er 52 talsins og eiga það sameiginlegt að birta sérkennilega mynd af samtímanum. Persónur og atburðir koma stöðugt á óvart og fáránleikinn er sjaldnast langt undan. Geisladiskur með lestri höfundar fylgir bókinni og svo skemmtilega vill til að verkið kemur samtímis út á Íslandi og í Tyrklandi.

 

Tónlist hamingjunnar er 60 bls. óinnbundin ásamt geisladiski.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/135

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni