Tré hreyfa sig hægt

Paal-Helge Haugen

Tré hreyfa sig hægt eftir Paal-Helge Haugen.

Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson valdi og íslenskaði þessi úrvalsljóð eftir eitt þekktasta skáld Norðmanna.
Paal-Helge Haugen (f. 1945) er afkastamikilll höfundur og hefur auk ljóða skrifað leiktexta og barnabækur. Í ljóðunum notar hann oft hversdagslegt málfar og myndir á sérstæðan hátt og tekst þannig að varpa nýju ljósi á hið ljóðræna landslag.
Í Tré hreyfa sig hægt birtast rúmlega 40 ljóð sem valin eru úr 7 bókum frá tímabilinu 1967 - 1990.
Útgáfuár: 1992. Bókin er 72 bls. ób.

Úr dómum:
Ljóð Paul-Helge Haugen eru um margt athygliverð og ekki síst áhugavert að fá í einni hendingu yfirsýn yfir skáldferil hans. Þýðingar Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar eru margar með ágætum. Einkum finnst mér vel hafa tekist með hin orðknappari og hnitmiðaðri ljóð..." (SÞH - Mbl. 16:7.1992)

"Hér birtast andstæður, m.a. fornra átaka og nýrra í "jötunsteinum og skotpöllum", dauðabeygur og viðkvæmt líf. Ég læt lesendum eftir að rekja sig áfram, en í sem stystu máli sagt, er þetta heillandi bók, og þýðandanum til sóma." (ÖÓ - Dv. 5.8.1992)


Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/105

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni