Kristín Steinsdóttir - Á eigin vegum

Kristín Steinsdóttir

Þessi rómaða skáldsaga er nú komin út á hljóðbók í lestri höfundar, en bókin kom fyrst út á prenti haustið 2006.
Sigþrúður er orðin ekkja og vinnur fyrir sér með blaðburði. Hún ræktar garðinn sinn og pottablómin, sinnir köttunum og sækir jarðarfarir. Hún er ein en ekki einmana; allt frá barnæsku hefur lífið kennt henni að treysta ekki á aðra en sjálfa sig. Fólkið hennar er horfið á braut og hún fylgir því í huganum en situr sjálf um kyrrt. Djúpt í sálinni búa þó draumar um annað líf, annað land. Geta slíkir draumar hugsanlega ræst?

Kristín Steinsdóttir er löngu landsþekkt og margverðlaunuð fyrir sögur sínar sem einkennast af vönduðum stíl og skopskyni.
Á eigin vegum hefur hlotið mikið lof og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, auk þess að fá Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna.
Á eigin vegum er 175 mín. að lengd og er á 3 geisladiskum.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/47

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni