Iðunn Steinsdóttir - Drekasaga

Iðunn Steinsdóttir

Þetta skemmtilega ævintýri kom fyrst út 1989 og hlaut afbragðs viðtökur. Sögusviðið er sjávarþorp undir háu fjalli, þar sem dreki býr í dimmum helli. Drekann langar til að kynnast fólkinu í bænum en allir eru hræddir við hann, því hann er svo ljótur. Þegar vandi steðjar að bæjarbúum er það þó enginn annar en drekinn sem kemur til hjálpar.
Framhald Drekasögu nefnist Leitin að gleðinni og kemur hér út í fyrsta sinn. Þar koma söguhetjurnar úr fyrra ævintýrinu gamla fólkinu í Blikabæ til aðstoðar. Drekinn og vinir hans leggja upp í langferð til að leita að sjálfri gleðinni.

Hljóðbókin er 86 mín. á 2 geisladiskum.

Höfundur les.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/56

Efni