Kristín Helga Gunnarsdóttir - Fíasól á flandri

Metsölusagan Fíasól á flandri eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur í lestri höfundar. Óskabarnið Fíasól er hér í essinu sínu og tekur auðvitað upp á ýmsu skemmtilegu. Hún útvegar fjölskyldunni einkaþjón, fær nokkra viðskiptarisa til að styrkja gott málefni, lendir í útistöðum við kyssistráka, tekst næstum því að hitta forsetann og fer loks á flandur til útlanda. Bókin er sjálfstætt framhald af hinum vinsælu sögum Fíasól í fínum málum og Fíasól í hosiló. Fíasól á flandri er 133 mínútur að lengd, á tveimur geisladiskum, og var hljóðrituð í Hljóðvinnslunni. Kápumynd er eftir Halldór Baldursson, en Vilborg Anna Björnsdóttir hannaði útlit.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/11

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni