Kristín Helga Gunnarsdóttir - Fíasól er flottust

Dimma hefur gefið út á hljóðbók metsölusöguna Fíasól er flottust eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur í lestri höfundar. Fíasól er flottust er fjórða bókin um hina hugmyndaríku og uppátækjasömu Fíusól, sem er níu ára og á heima í Grænalundi í Grasabæ. Hún lendir að venju í ótrúlegum ævintýrum, meðal annars í miklu sjóræningjarugli, kemst í kast við eldklára jólasveina, fer í endalausa útilegu og heldur upp á tækjalausa daginn. Sögurnar um Fíusól og fjölskyldu hennar eru eftirlæti íslenskra krakka og höfundurinn, Kristín Helga Gunnarsdóttir, hefur unnið til margra verðlauna fyrir þær og önnur verk sín. Nýja bókin er sjálfstætt framhald af hinum vinsælu sögum Fíasól í fínum málum, Fíasól í hosil og Fíasól á flandri, sem allar hafa komið út á hljóðbók.. Fíasól er flottust er 131 mínúta að lengd, á tveimur geisladiskum, og var hljóðrituð í Hljóðvinnslunni. Kápumynd er eftir Halldór Baldursson, en Vilborg Anna Björnsdóttir hannaði útlit.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/10

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni