Kristín Helga Gunnarsdóttir - Fíasól í hosiló

Frábær bók eftir metsöluhöfundinn Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Gleðisprengjan Fíasól kann best við sig heima í hosiló. Hún býr í hræðilega herberginu í Grænalundi og ásamt vinum sínum lendir hún næstum daglega í einhverjum ævintýrum. Hér koma við sögu ormar í rassi, ógnarlangt verkfall, jólabjáni og Jón finka svo eitthvað sé nefnd. Þessi bók er sjálfstætt framhald bókarinnar Fíasól í fínum málum. Kristín Helga Gunnarsdóttir er þekkt fyrir fjörlegar og skemmtilegar bækur, sem hlotið hafa mjög góðar viðtökur. Í lestri sínum á sögunum um Fíusól fer hún á kostum. Hljóðbókin er á tveimur geisladiskum, 97 mín. að lengd. Höfundur les.

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/12

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni