Kristín Steinsdóttir - Franskbrauð með sultu

Lilla fer með rútu frá Reykjavík til að heimsækja ömmu sína og afa sem búa í kaupstað á Austfjörðum. Þar eignast hún nýja leikfélaga og kynnist margvíslegu lífi og störfum bæjarbúa sem opna henni sannkallaða ævintýraveröld.

Fyrir þessa bráðskemmtilegu sögu hlaut höfundurinn Íslensku barnabókaverðlaunin árið 1987 og var bókin fyrsta barnabók Kristínar Steinsdóttur sem síðan hefur sent frá sér fjölda bóka og hlotið margar viðurkenningar fyrir verk sín, þ.á.m. Norrænu barnabókaverðlaunin.
Franskbrauð með sultu er 136 mínútur að lengd, á tveimur geisladiskum.

Höfundur les

Engin vísun/No TrackBacks

Vísun/TrackBack URL: http://www.dimma.is/mt/mt-tb.cgi/54

Setja inn umsögn/Place a Comment

(Þú mátt nota HTML kóða/You may use HTML tags for style)

Efni